Jóhann Helgason
lagahöfundur og söngvari
Songwriter: Jóhann Helgason
Lyricist: Kristján frá Djúpalæk
Eg vildi vera blómið, sem þú bregður þér í hár, og blær, sem við þig hjalar. Eg vildi vera óðurinn, sem ómar þér í hug, og orðin, sem þú talar.
Eg vildi vera myrkrið, sem lykur um þitt land, er líða á kvöldið tekur. Eg vildi vera grasið, sem grær við þínar dyr, og geislinn, sem þig vekur.
Eg vildi vera djásnið, sem þú dregur þér á hönd, og draumur þinn um nætur. Eg vildi vera tréð, sem þú tínir berin af, og tárin sem þú grætur.