Gull & Platína – smellir

gull & platína

1972      Magnús & Jóhann

1972      Yaketty Yak, Smacketty Smack

1973      Candy Girl

1974      Litla músin

1974      Change

1977      Hana-nú

1977      Gamlar góðar lummur

1978      Lummur um land allt

1979      Ljúfa líf

1980      Sprengisandur

1980      Í hátíðaskapi

1980      Lítið brölt

1980      Seinna meir

1981      Take Your Time

1981      TASS

1984      Ljósaskipti

1987      Kvöld við lækinn

1989      Ég vildi

1991      Íslandslög

1992      Afmælisupptökur

2000      Trú, von og kærleikur

2001      Hjartans mál

2002      Friðarstund

2002      Ástin og lífið

2004      Mansöngvar

2006      Óðflugur

2008      Drekasaga

2010      Gælur, fælur og þvælur

2012      Bréfbátur

2014      Árstíðirnar

2015      Komdu kisa mín

2016      Fuglaþrugl og naflakrafl

2017      Úrval af því besta

SMELLIR

#1

1972      MARY JANE

1973      YAKETTY YAK, SMACKETTY SMACK

1973      CANDY GIRL

1974      LITLA MÚSIN

1977      SÖKNUÐUR

1977      VERTU EKKI AÐ HORFA

1979      ÉG ER AÐ BÍÐA

1979      ÁSTARSORG

1979      Í REYKJAVÍKURBORG

1979      ÞÚ OG ÉG

1979      DANS, DANS, DANS

1979      LJÚFA LÍF

1979      VEGIR LIGGJA TIL ALLRA ÁTTA

1980      SEINNA MEIR

1980      ÉG GEF ÞÉR ALLT MITT LÍF

1980      VORIÐ KOM

1980      VIÐ FREISTINGUM GÆT ÞÍN

1980      HÁTÍÐARSKAP

1980      Í ÚTILEGU

1981      TAKE YOUR TIME

1981      SHE´S DONE IT AGAIN

1981      SAIL ON

1992      KAREN

1996      BID ME TO LIVE

TOPp TÍU

1974      I CAN BE WITH YOU

1975      MAMMA GEFÐU MÉR GRÁSLEPPU

1976      ÉG GLEYMI ÞÉR ALDREI

1977      ÉG LABBAÐI Í BÆINN

1977      DRIVING IN THE CITY

1977      POKER

1980      FYRSTA ÁSTIN

1980      SVEITIN MÍN

1980      VILLI OG LÚLLA

1980      AÐFANGADAGSKVÖLD

1985      I´M SORRY

1986      HAGAVAGNINN

1987      Í BLÍÐU OG STRÍÐU

1992      ÁSTIN OG LÍFIÐ

1993      STRÍÐ OG FRIÐUR

1996      THINK IT OVER

1996      SÓL MÍN OG SUMAR

1997      KEFLAVÍKURNÆTUR

1997      WORKING GIRL

2004      FARÐU EKKI BURT

2005      ÁSTIN MÍN EIN

2006     ÞEGAR ALLT ER HLJÓTT

2011      FEEL SO FINE

UM LÖGIN

MARY JANE 1972

Fyrsti smellurinn af fyrstu plötunni, Magnús & Jóhann. Hugmyndina að titlinum fékk ég úr sjónvarpsþættinum I Love Lucy, envinkona Lucy hét Mary Jane. Margir vildu tengja titilinn við ákveðna jurt, en við samningu textans var mér alls ókunnugt um tengls nafnsins við marijúana.

YAKETTY YAK, SMACKETTY SMACK 1973

Upphafið að Change-ævintýrinu má rekja til þess að ég samdi þetta lag. Fyrsta LP platan okkar Magga innihélt raddaða kassagítartónlist í anda bandarískra tónlistarmanna og kom út á vordögum 1972. Sama ár gerðist ég áskrifandi að breska tónlistartímaritinu Melody Maker, en á síðum þess réðu ríkjum ofurtöffararnir David Bowie og Marc Bolan/ T-Rex. Við samningu lagsins varð ég fyrir áhrifum þaðan og einnig frá Radio Luxemburg, sem ég reyndi að hlusta á  samhliða kanaútvarpinu. Þegar ég hafði samið lagið hringdi ég í Magga og sagðist hafa á tilfinningunni að við fengjum samning út á það erlendis. Sú varð raunin í október 1972, er Cliff Cooper, stofnandi og eigandi Orange í London, bauð okkur samning og gaf lagið út á smáskífu undir flytjendanafninu Change.

LITLA MÚSIN 1974

Ein af fyrstu tilraunum mínum við lagasmíðar og textagerð á sjöunda áratugnum,  upprunalegur titill var “Mr. Jones“. Þegar ég lét undan þrábeiðni Jóns Ólafssonar 1974 um að gefa út plötu, (sjá Umsagnir – Saga Ábótarplötunnar) dustaði ég rykið af þessu lagi og staðfærði titilinn upp á íslensku, „Hr. Jón“.

MAMMA GEFÐU MÉR GRÁSLEPPU 1975

Í lok sjöunda áratugsins starfaði ég um skeið sem aðstoðarmaður bakara á Keflavíkurflugvelli og virðist sú reynsla að einhverju leiti hafa orðið hvatinn að samningu þessa lags; Þegar ég söng það fyrst fyrir Magnús, 1970 eða ´71, byrjaði textinn eitthvað á þessa leið: “I was working in a bakery shop, baking cakes that no one would eat“… Það var ekki fyrr en 1975 að ég endurlífgaði lagið og samdi íslenska textann, fyrir barnaplötuna Allra meina bót, sem við félagarnir í Change unnum úti í Englandi. Íslenski textinn er óður til æskuslóðanna í Keflavík, en grásleppu, hangikjöts og- sælgætiskarlinn (konan) eiga sér öll raunverulegar fyrirmyndir. Bryggjan, þar sem við strákarnir veiddum kola og marhnúta, stóð kippkorn frá heimili mínu og þar átti grásleppukarlinn lítinn skúr. Hangikjötskarlinn var Ingimundur, kenndur við Ingimundarbúð, (þar var Rúnar Júlíusson eitt sinn sendill). Sælgætiskarlinn var reyndar kaupkonan Kristín, í hinni óviðjafnanlegu Kristínarbúð, sem höndlaði með allt milli himins og jarðar.

SÖKNUÐUR 1977

Samið í bakhúsi við Laugaveg. Vilhjálmur Vilhjálmsson var á þessum tíma einn eigenda Hljómplötuútgáfunnar hf. sem hafði bækistöðvar handan götunnar. Villi bankaði uppá hjá mér einn daginn með nokkra frumsamda texta. Þega ég hafði samið lög við þrjá þeirra, hitti ég Villa í Hljóðrita og söng m.a. þetta lag inn á band með kassagítar. Þegar ég hafði lokið mér af, kom Villi inn í upptökukefann og sagðist myndu láta útsetja lagið fyrir kammersveit. Útsetninguna gerði Jón „bassi“ Sigurðsson.

ÁSTARSORG 1979

Samið 1976 í gamla herberginu mínu í Keflavík. Upphaflega hljóðritað af hljómsveitinni Celsius 1977 við enskan texta, “Heaven On Earth“. Magnús Kjartansson heyrði lagið í Hljóðrita 1979 og falaðist eftir því fyrir Röggu Gísla á plötu Brunaliðsins Útkall. Hann fékk Birgir Svan Símonarson til að semja íslenska textann.

Í REYKJAVÍKURBORG 1979

Ég bjó í Los Angeles 1978 – 1979. Þar bjuggu þá einnig Sigurjón Sighvatsson, Jakob Frímann, Jónas R. Jónsson og Gunni Þórðar. Ég kunni vel við mig í LA, en hugurinn leitaði stundum heim á Laugaveginn þar sem ég hafði búið 1976 – 1978. Þær hugrenningar lögðu grunninn að tilfinningu upphafs stefsins í laginu Í Reykjavíkurborg, en það var ekki fyrr en eftir heimkomu 1979 að ég samdi lagið í Kópavogi og textann skömmu síðar í Reykjavík. Brunaliðið hafnaði laginu fyrir plötu sína Útkall, en það endaði sem kunnugt er á fyrstu plötu Þú & Ég, Ljúfa líf.

ÉG GEF ÞÉR ALLT MITT LÍF 1980

Samið 1976 í sunnudagsheimsókn hjá mömmu og pabba í Keflavík. Ég var þarna dáldið í fráhvörfum yfir að hafa yfirgefið England í desember ári fyrr og látið Magga eftir að  halda úti samningi við Chappell og hljóðrita demó fyrir þá. Lagið kom til mín með enskum titli, “I Give My Everything“ og var það framlag mitt á meðal annara laga fyrir plötuna Sprengisandur. Gunni kveikti ekki á laginu og lét ég Bjögga og Röggu það eftir á plötuna Dagar og nætur. Jón „í bankanum“ Sigurðsson samdi íslenska textann.

TAKE YOUR TIME 1981

Samið í Los Angeles þar sem ég var við upptökur á sólóplötunni TASS með fulltingi Jakobs Magnússonar.Ég hafði haldið utan með níu lög í farteskinu og kveikjan að því tíunda, varð til í leigubíl á leið í stúdíóið. Þar sem grunnupptökum var þá lokið, tókum við lagið upp heima hjá vini Jakobs. Það má því heita tilviljun að “Take Your Time“ varð fyrsta íslenska tölvupopplagið, en allur hljóðgervla-leikur var í höndum Jakobs.

SAIL ON 1981

Samið 1980, frumflutt á Stjörnumessu ásamt Mezzoforte 1981, hljóðritað fyrir plötuna TASS í Los Angele sama ár. Við Bo Halldorsson fluttum lagið í tveim alþjóðlegum söngvakeppnum, á Írlandi 1983 og í Tékkóslóvakíu ári síðar og unnum til silfurverðlauna í bæði skiptin.

SHE´S DONE IT AGAIN

Samið í Reykjavík 1981 fyrir fyrirhugaða sólóplötu. Við Helga Möller/Þú & Ég höfðum verið ráðin af íslendingafélaginu í Kaliforníu til að skemmta á 17. júní í Los Angeles og San Fransisco. Ég lagði til við Steinar Berg/Steinar h/f að upplagt væri að ég hljóðritaði í framhaldi sólóplötuna mína í LA með Kobba Magg. Jakob fékk nokkra af helstu hljóðfæraleikurum og upptökumönnum svæðisins í hljóðverið og til varð platan TASS sem hlaut þrenn verðlaun á Stjörnumessu 1982.

KAREN 1992

Samið gagngert til að senda inn í Evróvisjón. Lagasmíðin reyndist mér nokkuð torveld,  viðlagið ásamt titlinum  kom á undan, en fyrstu versunum henti ég og samdi ný. Ég fékk Björn „lífskúnstner“ Björnsson til að semja texta út frá titlinum, hljóðritaði demó og sendi inn í forkeppni 1990 en lagið komst ekki áfram. Ári síðar stóð Pétur W. Kristjánsson fyrir endanlegri gerð lagsins í útsetningu Jons Kjell Seljeseth og flutningi Bjarna Arasonar og munaði einu stigi að „Karen“ yrði framlag Íslands það árið.

ÁSTIN OG LÍFIÐ 1992

Sérstaklega samið fyrir diskinn Afmælisupptökur, sem við Magnús gáfum út 1992 í tilefni 20 ára starfsafmælis okkar. Lagið samdi ég við ljóð úr Kvæðakveri Halldórs Laxness. Þar sem okkur Magga þótti lag og ljóð ekki fara nægilega vel saman samdi ég  nýjan texta.

BID ME TO LIVE 1996

Versin samdi ég á píanó á Laugaveginum 1978 og studdist við ljóð úr The World´s Best Loved Poems, en titillinn er þaðan kominn. Það var ekki fyrr en sautján árum síðar, þegar ég var að semja lög fyrir sólóplötuna KEF að ég fann gömlu kasettuna og samdi viðlagið. Ég fékk skoska lagasmiðinn Reg Meuross, til að sníða texta að titlinum.

KEFLAVÍKURNÆTUR 1997

Æskufélagi minn úr Keflavík hafði samband 1996 og falaðist eftir handriti að skemmtidagskrá fyrir veitingastaðinn Strikið við Hafnargötu. Ennfremur fór hann þess á leit að ég semdi einnkennislag sem bæri titlinn Keflavíkurnætur. Eftir að lagið var samið  fól ég Rúnari Júlíussyni textagerðina. Ári síðar hljóðrituðum við lagið sem dúett í Upptökuheimili Geimsteins og  það kom fyrst út á sólóplötu Rúnars, Rokk & rólegheit.