Vegir liggja til allra átta

Songwriter: Sigfús Halldórsson

Lyricist: Indriði G. Þorsteinsson

Vegir liggja til allra átta
enginn ræður för
hugur leitar hljóðra nátta
er hlógu orð á vör
og laufsins græna á garðsins trjám
og gleði þyts í blænum
þá voru hjörtun heit og ör
og hamingja í okkar bænum.

Vegir liggja til allra átta
á þeim verða skil
margra er þrautin þungra nátta
að þjást og finna til
og bíða þess að birti á ný
og bleikur morgun rísi.
Nú strýkur blærinn stafn og þil
stynjandi í garðsins hrísi.