Sólarlag

Songwriter: Jóhann Helgason

Lyricist: Jóhann Helgason

Ó, þú ljós
milda ljós sem lýsir mér
lífsins sól bætir allt vort líf
vonarljós þú sem varðar veginn minn
blíða ljós þú ert ljósið mitt.

Ó, þú ljós
kæra ljós sem lýsir mér
líknar sól glæðir allt vort líf
vonarljós þú sem varðar veginn minn
blíða ljós þú ert ljósið mitt.

Hér væri´ ekkert líf
ef þín ei nyti við
þú færir birtu´ og yl á jörð.
Ást þín og hlýja
allt umvefjandi
þökk sé þér kæra sól.

Hér væri´ ekkert líf
ef þín ei nyti við
þú gefur birtu´ og yl á jörð.
Ást þín og hlýja
allt umvefjandi
þökk sé þér elsku sól.