Hvað boðar nýárs blessuð sól

Songwriter: Jóhann Helgason

Lyricist: Matthías Jochumsson

Hvað boðar nýárs blessuð sól?
Hún boðar náttúrunnar jól.
Hún flytur líf og líknarráð.
Hún ljómar heit af drottins náð.

Sem guðsson forðum gekk um kring,
hún gengur ársins fagra hring
og leggur smyrsl á lífsins sár
og læknar mein og þerrar tár.

Ó, sjá þú drottins björtu braut
þú barn sem kvíðir vetrar þraut.
Í sannleik hvar sem sólin skín,
er sjálfur guð að leita þín.

Því hræðst þú ei, þótt hér sé kalt
og heimsins yndi stutt og valt
og allt þitt ráð sem hverfult hjól.
Í hendi guðs er jörð og sól.

Hann heyrir stormsins hörpuslátt.
Hann heyrir barnsins andardrátt.
Hann heyrir sínum himni frá
hvert hjartaslag þitt jörðu á.

Í hendi guðs er hver ein tíð.
Í hendi guðs er allt vort stríð,
hið minnsta happ, hið mesta fár,
hið mikla djúp, hið litla tár.

Í almáttugri hendi hans
er hagur þessa kalda lands,
vor vagga, braut, vor byggð og gröf,
þótt búum við hin yztu höf.

Vor sól og dagur, herra hár,
sé heilög ásján þín í ár.
Ó, drottinn, heyr vort hjartans mál.
Í hendi þér er líf og sál.

Los Angeles ´78/´79