Hagavagninn

Songwriter: Jónas Jónasson

Lyricist: Ragnar Jóhannesson

Stúlkan mín á heima vestur í Högum,
hún er í búð við Laugaveg.
Miðdepill í ótal ástarsögum,
enginn veit það betur en ég.
Beibydoll hún selur og nælonsokka
og sjálf um nætur klæðist því,
í rauðu hári hefur hún hvíta lokka
og hún er sæt í bikini.

Mig dreymir hennar þýða yndisþokka,
þegar ég er háttaður.
Hún er óræð eins og myndirnar á Mokka,
svo maður verður gáttaður.
Með fagursveigða vör sem venusboga
og vöxturinn svona la la la,
sem götuvitar grænu augun loga
og göngulagið cha cha cha.

Og næfurþunnum náttkjólum hún klæðist,
svo næstum sést þar allt í gegn.
Til hennar hverja nóttu hugur læðist,
því einlífið er mér um megn,
með henni er ég alltaf einhvern veginn
óstyrkur og skortir magn,
hana sætt ég leiði inn Laugaveginn,
við laumumst inn í Hagavagn.

Ég stundum fæ að faðma hana á kvöldin,
fyrst fer hún í sitt beibydoll.
En samt til þess að sefa ástareldinn,
ég syng við hana í dúr og moll
og þótt mig stundum langi að vera lengur,
slíkt leyfist ekki að tala um,
hún segir alltaf ertu vitlaus drengur,
þú ert að missa af vagninum.

Með Hagavagni held ég burtu síðan,
já, held þá í mitt kalda ból.
Mig dreymir hennar yndisþokka þýðan
og þennan gegnumsæja kjól,
en sú er von að seinna þetta breytist,
við beibydoll og brúðkaupskoss,
þá um nátt hjá henni að vera veitist,
þá vagninn ekkert hrellir oss.