Fæ ég aldrei nóg

Songwriter: Jóhann Helgason

Lyricist: Kristján Hreinsson

Stundum hef ég heldur lítið,
heilladísir bregðast mér,
lífið virðist vera skrýtið,
ég veit hve slappur ég er.

Varla get ég veginn ratað,
vandamálin bíða hér,
útlitið er allt svo glatað
og ekkert gengur hjá mér.

Fæ ég aldrei nóg,
finn ég hvergi ró?
Hugsun mín er sljó.

Vandamálin vel ég þekki,
þau virðast alltaf fylgja mér
þó veit ég að það virkar ekki
að vera slappur og þver.

Fæ ég aldrei nóg…