Ég leita

Songwriter: Jóhann Helgason

Lyricist: Jóhann Helgason

Ég leita að brosi í blænum
á leið minni´ um strætin í bænum
ég leita og vona´ ég finni
senn hamingju´ á leiðinni minni

Ég leita að ljósinu bjarta
sem lýsir í myrkrinu svarta
þó oft sé ei auðrötuð slóðin
ég reyni að missa´ ekki móðinn

Ég leita og reyni
að finna það fegursta
sem að á vegi mér verður
ég leita á leið minni´ um heiminn
að hamingjusöngvum
til lífsins að syngja