Ég labbaði í bæinn

Songwriter: Jóhann Helgason

Lyricist: Vilhjálmur Vilhjálmsson

Ég labbaði í bæinn, mér létt í skapi var,
að líta inn á búllur samkvæmt vana.
Mér fannst ég vera þyrstur, fékk mér bjórglas inni á bar
og byrjaði að spá í nátthrafnana.

Þá settist hjá mér stúlka – hún sagðist vera sautján.
Hún sagði ei margt að vísu, en fylgdist með.
Ég gaf mér nægan tíma, því oft er það mín áþján
að ætla að gefa ráð og elginn veð.

Við töluðum um bilið, sem byggjum við af hvöt,
um bilið milli aldurs, sem er gríma.
Við gefa viljum börnum okkar græna skóga og föt,
en gleymum oft því dýrmætasta: Tíma.

Þá kom hún mér á óvart, því er égfór að inna
eftir hennar skoðunum, ef hefði hún einhverjar.
Það litla, sem hún sagði, ég verð að viðurkenna
vakti mig tilumhugsunar á því hver ég var.

Ég held við ættum stundum að hlusta aðeins betur
á hugrenningar þeirra, sem erfa skulu land,
því kannski er næsta kynslóð, kynslóðin sem getur,
komið fram með svörin, þar sem sigldum við í strand.

Okkur kann að virðast, að ungdómurinn nú
sé einskis nýtur – reki í lífsins gjólum.
En gleymum ekki staðreyndum, því staðreyndin er sú:
Það vorum ég og þú, sem upp þau ólum.