Ég gleymi þér aldrei

Songwriter: Jóhann Helgason

Lyricist: Jóhann Helgason

Ég gleymi þér aldrei
þú ert mér svo kær
á svipuðum aldri
vorum við ástkæra mær.

Þá fyrst er ég sá þig
og hjarta mitt sló og sló
það sló mig á kjaftinn
ég næstum því dó.

Ég gleymi því aldrei
fyrst er ég þig fékk
það var ósköp indælt
á eldgömlum dívanbekk.

Svo keyrði ég þig í skólann
og kyssti þig kinnina á
og hljóp svo um hóla
af eintómri þrá.

Og stundum
keypti ég fyrir krónu´ eða túkall
sitthvað sætt handa þér
bauð þérí Tívolí líka
þú hændist æ meir að mér.

Ég gleymi þessu´ aldrei
svo lengi sem lifað ég fæ
ég gleymi þér aldre
þú ert mér svo kær.

Sóló

Og stundum
keypti ég fyrir krónu´ eða túkall
sitthvað sætt handa þér
bauð þér í Tívolí líka
þú hændist æ meir og meir að mér.

Ég gleymi þessu´ aldrei…