Jóhann Helgason
singer-songwriter
Songwriter: Jóhann Helgason
Lyricist: Kristján frá Djúpalæk
Gaman litli, stíg við stokkinn. Standa einn, já gott hjá þér. Ég skil vandann: Jörðin hreyfist, jafnvæginu halda ber.
Gagn er fyrst að ganga meðfram. Gott og vel, þú enn ert seinn. Detti barn skal brölt á fætur. Bráðum ferðu að ganga einn.
Trítla gólf á tveimur fótum, tinda klífa, skrefa hjarn. Það er manna mesti sigur. Misstíg þig samt ekki, barn.