Við freistingum gæt þín

Songwriter: Jóhann Helgason

Lyricist: Matthías Jochumsson þýddi

Við freistingum gæt þín og falli þig ver,
því freisting hver unnin til sigurs þig ber.
Gakk öruggur rakleitt mót ástríðu her.
En ætíð haf Jesúm í verki með þér.

Hinn vonda soll varast, en vanda þitt mál.
Og geymdu nafn guðs þíns í grandvarri sál.
Ver dyggur, ver sannur, því drottinn þig sér.
Haf daglega Jesúm í verki með þér.

Hver sá, er hér sigrar, skal sigurkrans fá.
Í trúnni vér vinnum, þótt verði margt á,
því sá, er oss hjálpar, við hrösun oss ver.
Ó, hafðu þinn Jesúm í verki með þér.