Stríð og friður

Songwriter: Jóhann Helgason

Lyricist: Þorsteinn Eggertsson

Frið eftir langa bið
öll viljum við
semjum frið.

Stríð hafa alla tíð
ært heimins líð
ég vona ´að brátt
allsstaðar verði sátt.

En þótt vígbúist her
friðsæl veröldin er
víðast hvar
en hér og þar eitthvað út af ber.

Aldir ár geysa stríð
heimta fórnir af saklausum lýð.
Sorgir fár
blóð og tár
vígi falla og seint gróa sár.

Við, bæði ég og þú
veljum frið
von og trú.

Vörn þurfa saklaus börn
sem stríðið flátt
leikur grátt
hvert átak stórt byrjar smátt.

En þótt vígbúist her…

Aldir ár…