Í Reykjavíkurborg

Songwriter: Jóhann Helgason

Lyricist: Jóhann Helgason

Ætíð mun ég elska þig
bæði ár og síð
og ef þú vilt eiga mig
glöð ég gjarnan bíð.

Lífið kemur, lífið fer,
veldur gleði og sorg.
Heit af ástum ein ég er
í Reykjavíkurborg.

Koma tímar, koma ráð,
segir máltækið.
Þá ég bara bíða má,
í Reykjavíkurborg.

Ó, ef ég fengi falið þér
mína miklu ást
oki yrði létt af mér
ég þyrfti ei meir að þjást.

Ég þyrfti ekki að líða af þrá
og bera út á torg
mína einu sönnu ást
í Reykjavíkurborg.

Koma tímar koma ráð…

Komdu til mín, komdu fljótt,
beðið get ég ei
árin líða svo undur skjótt
segðu ekki nei.

Hvort ástin láti bjóða sér
allt og hvað sem er
er nú orðin eilífleg
spurn á vörum mér.

Einn þú hefur svarið við
minni ástarsorg
löng er orðin þessi bið
í Reykjavíkurborg.