Í blíðu og stríðu

Songwriter: Jóhann Helgason

Lyricist: Jóhann Helgason

Mín ást til þín
er hrein og fögur
kallar fram það besta í mér
og ég veit sú ást mun endast
alla okkar ævitíð.

Saman í blíðu´og stríðu
við leitum og finnum
saman í blíðu´og stríðu
vorn ævi veg
gefum hvort öðru
gleðjum hvort annað
veitum hvort öðru ástúð og yl.

Augu þín mig ákaft seiða
segja mér þú elskir mig
og ég veit þú vilt mig leiða
um lífsins ótal
hálu stig.

Saman í blíðu´og stríðu…

Ég leitaði´að ljósinu
leitaði´og fann þig
þú ert mér hamingjan
um ókomna tíð.

Saman í blíðu´og stríðu…