Bráðum kemur betri tíð

Songwriter: Jóhann Helgason

Lyricist: Halldór Laxness

Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga
sæta langa sumardaga.

Þá er gaman að trítla um tún og tölta á engi
einkum fyrir unga drengi.

Folöldin þá fara á sprett og fuglinn syngur.
Og kýrnar leika við kvurn sinn fingur.