Augnaráð þitt til mín talar

Songwriter: Jóhann Helgason

Lyricist: Jónatan Garðarsson

Rödd þín er tælandi þýð
Rödd þín er hvöss en þó blíð
Rödd þín hún kallar á stríð
Ég allur ólga og sýð

Orð þessi eru mjög þjál
Þau virka sem segulstál
Orð geta tendrað upp bál
En orð mín þau stinga sem stál

Augnaráð þitt til mín talar
Augnaráð þitt er aðeins ætlað mér

Því ertu harðorð og köld
Þú felur þig bak við skjöld
Við áttum unaðslegt kvöld
Þá hafði ástin öll völd

Augnaráð þitt til mín talar

Komdu til mín færðu þig nær ég þrái þig
Komdu til mín þú ert mér kær
Ég elska þig