LUMMURNAR 1977-1978
Gunnar Þórðarson: Hugmynd, útsetningar, upptökustjórn, hljóðfæraleikur. Söngvarar: Linda Gísladóttir, Ragnhildur Gísladóttir, Ólafur Þórðarson, Valur Emilsson, Jóhann Helgason. Útgefandi: Ýmir hf.
brot úr íslenzkri poppsögu © Jóhann Helgason
Lummurnar voru hugarfóstur Gunnars Þórðarsonar og tók ég vel í að vera með í að endurvekja dægurflugur æskuáranna. Auk mín fékk Gunnar til liðs við sig tvær ungar og upprennandi söngkonur, Lindu og Ragnhildi Gísladætur. Til að fullmanna söngflokkinn réð hann auk þess Ólaf Þórðarson úr Ríó tríói og Keflvíkinginn og fyrrverandi Óðmanninn Val Emilsson frænda minn (bróður Ómars úr Rofum).
Söngkvintettinn small vel saman á æfingum heima hjá Gunna þar sem lögin voru valin og æfð í margradda búningi. Upptökur gengu vel fyrir sig í Hljóðrita, enda viðfangsefnið skemmtilegt, útsetningar fjölbreyttar og valikunnir menn í hverju rúmi.
Gamlar góðar lummur sló rækilega í gegn hjá þjóðinni, seldist sem heitar lummur (platínusala) og ellismellirnir tóku að hljóma á ný á gömlu gufunni.
Sérstakur sjónvarpsþáttur var framleiddur og flokkurinn tróð upp á Arnarhóli á 17 júní. Lummurnar áttu söluhæstu plötu ársins og veittu verðlaunum þar að lútandi viðtöku á Stjörnumessu á Hótel Sögu.