Jóhann Helgason
singer-songwriter
Songwriter: Jóhann Helgason
Lyricist: Jóhann Helgason
Hér sit ég einn og hugsa til þín, saknarðu mín, bíðurðu mín? Ég veit ei hve lengi ég hef, dvalið þér burtu frá.
Í dimmum klefa kaldur og sár, una ég má, um ókomin ár. En aldrei gleymi ég þér, þú ert mín eina ást.
Á meðan þú bíður í húsinu heima, þá hugsa ég til þín og læt hugann sveima. En kannski á morgun mitt hjarta af sorgum, mun hætta að slá.
Nú nóttin bak við rimlana býr, koldimmri hönd, að mér hún snýr. Þá bið ég algóðan Guð, að vaka yfir þér.
Á meðan þú sefur í húsinu heima, á svæflinum kúrir og lætur þig dreyma. Við brátt munum saman í draumheimum dvelja, uns birtir á ný.